|
|
Starfsemi - Betur vinnur vit en strit
|
|
Heildarlausn fyrir fyrirtæki
Léttitækni sérhæfir sig í framleiðslu og innflutningi á tækjum til að létta dagleg störf og auka afköst, allt frá léttum vögnum
og trillum upp í stóra sérhæfða lyftara.
Þú getur verið viss um að vörurnar okkar sameini gæði, endingu og gott verð.
|
|
Sérsmíði.
Starfsmenn Léttitækni ehf
hafa mikla reynslu í hönnun og sérsmíði úr járni, ryðfríu, stáli og áli. Gerum föst verðtilboð.
|
|
Innflutningur
Léttitækni ehf
flytur inn fjölbreytt úrval af hjólabúnaði, lyfturum, stöflurum, lyftum og ýmis tæki til að létta störfin.
Ávalt hefur verið lögð áhersla á að bjóða uppá aðeins hágæða vörur sem uppfylla ströngustu kröfur.
|
|
Af hverju léttitæki?
Allt sem einfaldar og sparar vinnu og tíma er eftirsóknarvert að því gefnu að
kostnaðurinn sé innan þeirra marka sem stjórnendur telja eðlilegan miðað við niðurstöðuna.
Afköst fyrirtækis eru mælanleg. Með réttum tækjum er hægt að auka afköstin.
Dæmi um slíkt er flutningur á aðföngum, geymsla þeirra og fleira. Tímasparnaður skiptir fyrirtæki
máli og er auðreiknanlegur í peninga. Starfsmannahald er dýrt. Álag á starfsmenn vegna vöðvatengdra
verkefna getur verið mikið og þess vegna gaf félagsmálaráðuneytið út reglugerð 499/1994:
"Reglugerð félagsmálaráðuneytisins um öryggi og hollustu þegar byrðar eru handleiknar, nr. 499/1994 kveður
á um að atvinnurekandi skuli hafa viðeigandi hjálparbúnað eða tæki til reiðu fyrir starfsmenn til að draga
út hættu á heilsutjóni . Reglurnar gilda um þau tilvik þegar byrðum er lyft, þeim ýtt eða þær eru fluttar
til með handafli. Atvinnurekanda er þá skylt að gera ráðstafanir til að starfsmenn komist hjá því að handleika
byrðar þannig að þeim stafi hætta af, og er það ýmist gert með breyttu skipulagi eða með notkun hjálpartækja."

Langvarandi álag getur valdið ýmsum kvillum sem aftur leiða til minni afkasta og jafnvel fjarveru frá vinnu.
Umfram allt byggir starfsemi fyrirtækja og stofnana á að fækka handtökum, gera leiðir greiðar og auðveldari.
Þannig næst meiri og betri árangur.
|
|
|
|
|
|
|